<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Dec 19, 2004
BlOgG


Posted at 08:58 am by liney
Make a comment  

Dec 12, 2004
Julehygge söngur og MeMe

   Þetta er búin að vera alveg yndisleg helgi. Á föstud. bauð ég 8 stelpum í mat eða nánara tiltekið íslenskt lambalæri. Í meðlæti var ótrúlega góð sósa (þótt ég segi sjálf frá), kartöflur, rauðkál og salat. Í eftirrétt var íslenskt brennivín! Stelpurnar voru allar á því að danskt lamb kemst ekki í hálfkvist við það íslenska. Það var mjög huggulegt hjá okkur og við rétt svo komumst allar inn í eldhúsið/stofuna. Síðan var spjallað og hlustað á tónlist og auðvitað skálað við lagið Sóóólstandargæi! Og verð ég að viðurkenna að þær eru orðnar nokkuð góðar, framburðurinn er næstum réttur.  Reyndar kannski ekki skrýtið, enda mikil vinna og æfing þar á baki. 

   Á laugard. fór ég að syngja með kórnum á svokölluðum NAK-tónleikum í Vor Frelserens Kirke. Þar voru komnir saman íslenskir, grænlenskir og færeyskir kórar. Ekkert smá sem allir kórarnir stóðu sig vel! Eftir það fór ég svo heim, en hafði þó planað að fara út í bæ með öllu kórfólkinu, en þar sem ég var frekar slöpp eftir gærdaginn og átti eftir að lesa fyrir morgundaginn nennti ég ekki. Ég fór þó ekki að lesa þegar ég kom heim, eins og við var að búast, heldur talaði við helling af Íslendingum; Mömmu, sys, Erik og Sævar svo einhverjir séu nefndir ;)  En ég gerðist dugleg um 10-11 leytið og undirbjó mig vel og mætti eldhress og vel undirbúin í morgunn í skólann að skrifa verkefni.

   Um klukkan 2 í dag var síðan haldið heim til Lisbeth í julehygge, þar sem var spilað, hlustað á músik, talað og drukkið jólaglögg, (eiginlega of mikið..). Við komum líka allar með lítinn pakka og það var farið í pakkaleik. Ég vann karamellukex og 2 kerti. Það verður sko farið í svona pakkaleik á sumarbústaðadjamminu milli jóla og nýárs það er alveg klárt!  Við enduðum teitið um 7 leytið þegar búið var að spila jungle jam 100 sinnum!

 

Núna er ég svo alveg alveg alveg að fara að læra.. ætla að standa mig þessa fáu daga sem eftir eru fyrir jólafrí. Svo mæti ég hress að vanda á klakann á laugard. Kannski ef ég er rosalega dugleg, blogga ég áður en ég kem heim.. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, Ísland eftir 6 daga vúhú! Þrátt fyrir mikinn lestur framundan held ég að þetta verði rosalega góð jól, ég er viss um það, finn það á mér!!

 

En nú er best að hefjast handa

Ha det bra, eins og Oddný myndi bera svo vel fram

 

Knúsar og kossar


Posted at 11:42 am by liney
Comments (1)  

Dec 7, 2004
Julefrokost, fög og sakn

já það var alveg rosalega gaman á julefrokost á föstud. síðasta. Vá hvað ég blogga sjaldan!  Dansaði af mér fæturnar, eða varð allavegana illt í þeim. Það var inn hjá strákunum að fá sér mistiltein og standa síðan með stút á vör og ætlast til að stúlkurnar kysstu þá. Ég, Íslendingurinn, hló bara af þeim.. :þ    "æ hún þekkir greinilega ekki þennan danska sið" sögðu þeir alveg miður sín....hehe

Á laugardeginum fór ég þunn og hress, einhvert út á land að syngja á einhverjum julemarked með kórnum. Það var soldið huggó og við fengum eplaskífur og heitt kakó að launum.

Hinir dagarnir fóru bara í eitthvað rugl.

Núna er komið að því að ég má velja hvaða fög ég tek í skólanum. Er að pæla í að taka líffræði og hvíla mig smá á landafr. Hvernig líst fólki á það? Þetta er algjört pain að taka svona ákvarðanir, eitthvað annað sem ykkur finnst passa við mig???

Það er svo mikið sem ég á eftir að gera miðað við hvað það er stutt í að ég fari heim. Held ég hætti að blogga að sinni og fara að gera eitthvað!!

Sakna ykkar pinku pons :-)

 1000 x kossar

Posted at 09:42 am by liney
Comments (5)  

Dec 1, 2004
Styrkur

Jiibbiiii
Ég fæ styrk, ég fæ styrk!!! 3000kr danskar sem þýðir að ég hef efni á að gefa allri fjölsk. jólagjafir á minn kostnað án hjálp frá Lín!! ó je baby, je...  Eða við getum líka lagt þetta þannig upp að nú hef ég efni á að kaupa föt og fara í bæinn á kostnað danska/íslanska (dont know) ríkisins!! heh ó ég er svo glöð!!


Jájá allir hressir og svona..

Ég er öll að braggast, fór í skólann í morgunn og svona. Leið samt ekkert hræðilega vel en það voru bara 2 fyrirlestrar svo ég lifði það nú alveg af. Fór siðan strax heim, tók verkjatöflur og steinsofnaði. Orkaði ekki að fara í klifur , enda hrædd um að ég myndi nú ekki tolla lengi á veggnum.
Eftir mikinn svefn, varð mín hressari og kellan skellti sér í amagercenter í leit að julefrokostsfötum.  Það var lítið að finna en ég endaði með að kaupa einn rauðan og fínan bol, rétt áður en ég fór heim. Ekki það að það leysti vandamálið í hverju ég á að fara á julefrokost því ég á alveg nóg að fínum bolum, en common mar fer ekki í sér verslunarleiðangur og kaupir ekki neitt!

Ég keypti mér líka lítinn poka með konfekti í á 10kr. Hugsaði að það væri svo gasalega lækker að hafa svona eðal gómsæti í skál á eldhúsborðinu heima. Áður en ég vissi af var ég byrjuð að borða nammið sem átti að fara í skálina þegar ég kæmi heim. En viti menn, þetta var ekkert smá ógeðslega vont og það var alveg sama hvernig mola ég tók, þeir voru allir jafn vondir. Þannig að ég fattaði að nú myndi tilgangnum með nammikaupunum örugglega nást, aldrei þessu vant!!! Restin af molunum mun sennilega standa á borðum fram til jóla, eða þangað til þeim verður hent! Jibbbiiii.. þetta er æði dagur... Keypti mér samt coca cola á leiðinni heim svo ég myndi nú alveg örugglega ekki þjást af sykurskorti! híhí


Verið hress, ekkert stress
bless bless
  

Posted at 09:40 am by liney
Comments (2)  

Nov 30, 2004
Reikningsdæmi

Nóg dagskrá framundan. Julefrokost næsta föstud með öllu tilheyrandi: fyrirpartý, mat og kræsingum, dansiballi og djammi í bænum ef allir verða hressir langt fram eftir nóttu...

Á laugard er hinsvegar eitthvað sönglerí í fuglegaarden. Allir að mæta í lopapeysum og svaka stemmari. 

 

Núna er ég hinsvegar hálf slöpp.. fór ekki í skólann í morgunn. Jú ég lagði af stað fór upp í metróinn og allt, en fór bara með næsta metró beina leið heim aftur því ég hafði svo mikinn hausverk. Núna er ég búin að sofa miljón mikið og ætti því alveg að fara að verða hress aftur.

 

 

Jæja smá reikningsdæmi:

 

1. Decide the number of times you wish to make love during one week.

 

2. Multiply this number by 50.

 

3. Add to the result 44.

 

4. Then, multiply by 200.

 

5. If, this year, you have already celebrated your birthday, add 104. But if you have not celebrated it yet add 103.

 

6. Last step: to the result you have obtained, subtract your birth year (for example, subtract 1968, 1973, etc.).

 

Once you have made the subtraction, you should have a number with five figures.

 

 

 

Útkoman sést í comment


Posted at 06:39 am by liney
Comments (5)  

Nov 27, 2004
Birgitta

Hehe
Æ hvað er fyndnara en þetta:



,,Dætur mínar eru búnar að bíða þvílikt eftir Birgittu dúkkunni, að fá að sjá hana og hefur hún sko verið efst á óskalista svo vorum við að horfa á Gísla og þær fóru bara að gráta, þær voru svo svekktar, fannst dúkkan vera LJÓT, núna vilja þær sko ekki fá svona ljóta dúkku, vilja fá dúkkuna til að fá fötin hennar Birgittu en setja annan haus á hana.,,


tekið af http://www.birgittaworld.com/






Posted at 05:58 am by liney
Comments (4)  

Nov 26, 2004
Félagsleg samvera

Það er alltaf verið að skamma mann!
Bloggaðu, downloadaðu skype, gerðu hitt og gerðu þetta!

Ég byrja á því að blogga

Ætlaði að vera svaka dugleg í dag og taka allt í gegn, þrífa, þurrka af, þvo og öll þessi leiðinlegu Þ-orð. En núna er kl. 2 og lítið eftir að deginum svo það tekur þvi ekki.. allavegana ekki þegar ég er búin að blogga og hanga og svoleiðis í nokkra tíma!! ha ha..

Er að fara út í kvöld, veit ekki hvert, enda það ekki aðalmálið. Félagsleg samvera er bæði skemmtileg og þroskandi og nauðsynlegur þáttur í lífi ungrar stúlku. Það er það sem skiptir mestu máli, ekki satt? Ha..mamma, ekki satt? Vildi stundum að það væri hægt að velja hvaða texta hvaða fólk sæi. T.d. þannig að m&p sæju bara "fór út að hlaupa"(sem skeður reyndar svo sjaldan) "fór í klifur" "lærði heima"... en svo aðrir kannski einhver meiri detail. Svo mætti bloggið alveg vera læst fyrir jón út í bæ.. 

Á morgunn er ég svo að fara að passa litla frændur, þá Benjamín og Tómas Atla. Það verður örugglega mjög fínt, þótt þeir fara nú örugglega tiltölulega snemma að sofa. Ég reyni nu samt eftir bestu getu að spilla þeim aðeins!  

Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og núna eru rétt rúmar 3 vikur þar til ég lendi á klakanum. Er eitthvað spennandi búið að gerast þar? Eða byrjar fjörið fyrst þegar við hér frá skandinavíu lendum. Gvuu Oddný Spoddný er nú bara að fara að lenda eftir nokkra daga!


 

Posted at 05:01 am by liney
Comments (4)  

Nov 23, 2004
Til hamingju með afmælið Sævar

Ojj ég nenni ekki heldur að blogga! Kannski mar hætti þessu bara alveg...


En allavegana ætlaði ég bara að skella einni afmælisköku út á veraldarvefinn í tilefni af afmæli Sævars í gær! 'uff hvað ég var ekki sátt þegar hann plataði mig að hann ætti afmæli þann 21 og ég hefði misst af að segja til hamingju með afmælið á réttum tíma...

Kaka:





Annars er lítið að frétta. Foreldrarnir farnir heim og íbúðin hálf tóm. Þó mun fallegri en áður en þau komu, því hér hanga myndir á veggjum og gardínum fyrir gluggum. Yndislegt alveg hreint! Takk fyrir það mamma og pabbi þið eruð góðir skreytarar.

Klifur á morgunn og verkefnavinna í margar margar klst. Reyndar held ég að næsta vika fari bara í það að læra, enda ekkert smá mikið sem mig vantar að lesa upp.

Jæja þetta er nú ekki skemmtilegt umræðuefni

Læt þetta gott heima

bleble




Posted at 08:46 am by liney
Comments (9)  

Nov 18, 2004
Fallalalala

p.s. núna verða allir að breyta nafninu á blogginu hennar stellu í:
a) Stella og félagi
b) Stella og Co.
o.s.frv.
eða Inga og hin stelpan sem bloggar með henni.. :)

Vá ok.. ég náði ekki einu sinni að breyta nafninu á síðunni minni, þegar þær eru bara búnar að gefast upp sko!! Slappar!.. nei djók, mar verður nú að passa sig að nota þetta orð aldrei aftur! En ég trúi því tæpast að þessar ungu kindur geti ekki haldið út eina bloggsíðu! Ég hlusta ekki á svona.. farið að blogga!

Jæja núna er ég búin að kaupa og kaupa og kaupa. Mamma og pabbi eru í heimsókn og það er sko búið að þræða verslanirnar og ég farin að geta sagt til um verðin á vörunum án þess að kíkja á þær! Keypti mér ótrúlega flottar buxur með æðislegum vösum. Þær eru alveg fullkomnar og kostuðu einungis 300 kr danskar. Geri aðrir betri kaup! Sævar ég mæli með því að þú farir og finnir þér svona buxur með flottum vösum, vasarnir eru málið! Hann heldur því fram að hann gangi í hverju sem er, en ég hef aldrei á ævinni upplifað annað eins eins og þegar ég fór með honum í búðir, hann hefur sko skoðanir á hvaða föt eru flott og hver ekki! (Samt rangar skoðanir.. )

Ég er byrjuð á nýrri önn í skólanum sem leggst svona lala í mig. Annað fagið frekar leiðinlegt, en ég held að hitt sé hinsvegar mjög skemmtilegt.  Klifurtímarnir ganga vel og ég búin að læra að hanga eins og apabróðir í klifurveggnum. Rosalega skemmtileg íþróttagrein og nú vantar mig bara að kaupa mér klifurskó. Verst að mér kvíður nú soldið fyrir því. Klifurskór eiga nefnilega að vera svo litlir að maður á bara rétt að geta troðið sér í þá með því að kreppa saman tærnar! ohh krepptar tær eru ógeð!

Á morgunn er auðvitað fredagsbar og allir mæta í skólann hressir og þyrstir.  Það verður brjáluð mæting held ég, enginn búinn að koma með lélegar afsakanir fyrir að mæta ekki. Svo er verið að plana jólaföndur og síðar julefrokost og ég veit ekki hvað og hvað.. Í næstu viku fer svo örugglega að byrja törninn með kórnum, Fallalallala um allan bæ!

Oddný ég er fékk kortið frá þér í gær sem þú sendir frá París. Það var fyrst sent til Þýskalands nefnilega. Einhver hafði skrifað með svörtu stóru letri Deutschland á kortið.. skrýtið..
Þú sagðir að þú værir að pæla í að koma bráðlega. Þú mátt gjarnan koma aftur, það væri frábært!

knúsar og kossar







Posted at 02:09 pm by liney
Make a comment  

Nov 13, 2004
Hreinleikinn

Jæja ég ætla sko ekki að vera einn af þessum lélegu bloggurum sem nenna aldrei að blogga, svo here I blog:

 

Sko.. núna er tiltektardagur þar sem mínir heittelskuðu foreldrar eru að koma á morgunn. Ekki það að það þurfi mikið að þrífa, enda glansar hér allt af hreinleika hversdagslega, þetta er bara hálfgerður kækur hjá mér orðinn, taka upp tuskuna þegar ég er búin að læra og strjúka af. Líka að smyrja holt og gott nesti fyrir morgundaginn, brjóta saman fötin mín og fara snemma í háttinn og svona, svo ég haldi nú aðeins áfram..

Held ég taki mér nú samt frí þegar ég kem heim um jólin..

 

Þessi bjánar í ríkisstjórninni eru nú alveg að tapa sér.. Held það ætti að senda þá alla í grunnskólann aftur og borga kennurum sæmileg laun fyrir það eitt að kenna þeim mannasiði.. En ekki orð um það meir.

 

Í kvöld er ég að fara út og vonandi djamma smá. Erum ekkert búnar að plana neitt, en allavegana ætlum við að hittast kl. 10 heima hjá Tennu því þá er Lisbeth búin að vinna. Við erum ss að fara að hittast þrjár, við Íslands vennerne Tenna, ég og Lisbeth, sem skrifuðum ritgerð um Sólheimajökul og brilleruðum ; ) mmm..2 græna fyrir því!

 

Jæja best að halda áfram að strjúka af tandurhreinum eldhússkápum og hlusta á jólalögin, að sjálfsögðu!

 

bleble


Posted at 09:12 am by liney
Comments (2)  

Next Page